Dugleg fjölskylda :-)

Auðvitað erum við alltaf dugleg, ég þarf nú ekkert að vera minnast á það eða hvað....
Jú það má nú alveg gera það. Það er búið að setja nýtt parket á efri hæðina, annað var ekki hægt. Það var ekki hjá því komist því það vantaði gólfefni að hluta til í annað herbergið og hitt herbergið...tja... samskeitin voru ónýt, upphleypt og ógeðsleg, sennilega eftir að ofnarörin voru sett niður þá hefur líklegast ekki verið gengið frá samskeitunum aftur og þau skemmst fyrir vikið. En hvað um það, nú er búið að fjarlægja dúkinn og setja parket í staðin og á svefnganginn líka því það var engin þröskuldur til að skilja að ganginn frá herbergjunum. Þvílíkur munur, þetta er orðið eins og hjá fólki núna.
Nú þarf maður ekki að reyna fela ósómann með húsgögnum lengur, sem betur fer. Ég sá að það gengi ekki upp að fara parketleggja án þess að mála fyrst, svo það var farið út í að mála ganginn og herbergin áður en parketið var lagt niður. Reyndar var sett veggfóður á hluta af veggnum í ganginum og öðru herberginu, það kemur mjög vel út, mjög smart. Efri hæðin er orðin allt allt önnur og maður hefur það á tilfinningunni að maður sé komin inn í annað hús! Auðvitað varð mikið rask við þetta og heimilið fór á hvolf þar sem það varð óhjákvæmilega að fjarlægja öll húsgögnin á efri hæðinni. Við nýttum tækifærið og fórum með í nytjamarkaðinn hjá Sorpu tvo skápa, hillur og fleira dót sem aðrir gætu mögulega nýtt heima hjá sér. Á meðan á þessu stóð urðu allir að sofa niðri. Þröngt mega sáttir sitja
Nú er verið að klára mála stóra herbergið uppi, gólfefnið í því herbergi er í lagi nema það þarf að lakka borðaparketið þar, því það flísar svo upp úr því. Það þarf að klára mála það herbergi áður en gólfið verður lakkað. Þar á að setja bleikt veggfóður að hluta til. Auðvitað valdi Eddý litinn og munstrið á veggfóðrinu 
Við erum voða dugleg að fara út fyrir bæinn í göngutúra með fjölskylduna og hundana, hleypa hundunum lausum og leyfa þeim að njóta þess án þess að vera heftir í bandi. Við látum snjóinn ekki aftra okkur, það gerir göngutúrana bara skemmtilegri, á sinn hátt.
Við erum líka voða dugleg að taka myndir og síðar mun ég gefa mér tíma til að setja inn fleiri myndir.
Ætli ég láti þetta ekki duga í bili.... þangað til næst, verið hress og njótið augnabliksins
Krökkunum hlakkar til helgarinnar vegna þess að....
Lífið er lotterí...
Ég skal nú bara segja ykkur það. Hvort það er tilviljun ein að ég fékk staðlaðan póst frá einni af vinkonum mínum þar sem segir;
If you open this you have to repost it , guy or girl, or you will have bad luck for the rest of your life!!!!!
If you have a lot of love for someone, copy and send this to your whole list.
Something good will happen to you at approx. 1:42pm
tomorrow, it could b e ;anywhere.
So get ready for the biggest shock of your life!.
Jæja, nema hvað, vinkona mín segir, tja..ég held ég sé orðin hjátrúafull, ég allavega tek ekki sénsinn... :)
Hummm...hugsaði ég með mér, ég fékk póstinn frá henni fyrir 10 dögum síðan og ég opnaði hann í gærkveldi huhu... samkvæmt þessum staðlaða pósti varð ég að senda hann áfram strax eftir að ég fékk hann.....en ég sendi hann...miklu seinna hehehe.....
Ég replay póstinum á hana til baka og svara henni og segi...
xxxx þó! Svo sendir þú mér þetta! Hahahaha þú ert algjört met skvísa :) Hversu oft hefur maður ekki fengið svona póst og ekkert rosa skemmtilegt sureprise komið upp á ....fyrir utan mitt daglega skemmtilega líf, ég er enn að bíða skvísípís....
Nema hvað! Ég og börnin mín ákváðum að fara í bæinn um half tvö leitið í dag til að eyða peningum, kaupa tölvumús, merkipenna og athuga verð á kortalesara og láta stækka vinnsluminnið í tölvunni hennar Rakelar.
Þegar við erum að byrja keyra niður Gilið þá byrjar bíllinn að renna stjórnlaust og fer hring eftir hring á veginum. Það var bíll sem var að koma frá Akureyrarkirkju og ætlaði að beygja inn í Gilið en hann var fljótur að stöðvar bílinn sinn þegar hann sá jeppan okkar dansa hringi á veginum. Rakel öskraði og grét, tárin léku niður kinnar hennar í stríðum straumum. Hún hélt þetta væri hennar síðasti dagur. Benjamín hélt fyrir eyrun og klemmdi aftur augun, hann fraus og þagði. Sá bíll rétt slapp, bíllinn sem kom á móti okkur á leiðinni upp Gilið, rétt slapp líka. Bíllinn sem var fyrir aftan hann, kræst! bílstjórinn stoppaði bílinn sinn og beið ....afturendinn á bílnum mínum flaug annan hring og var afturendinn ekki meira en 5 sentimetra frá framhluta bílsins og það næsta sem ég sá var að húsveggurinn nálgaðist okkur óðfluga! jeppinn fór á milli tveggja bíla án þess að snerta þá! Ótrúlegt en satt! Við sluppum ómeidd og bíllinn óskemmdur.
Kannski var lukkuhjólið með okkur þegar þetta skeði...eða kannski gripu örlögin inn í og létu að þessu verða.... Var þetta mitt tölvu-póst sureprise...
So get ready for the biggest shock of your life!Eða var þetta bara tilviljun?
Starfslokasamninga á að taka af! Kosturinn við að búa út á landi...er það lúxus? Lá laun á landsbyggðinni!
Vangaveltur... Allt í einu fór ég að hugsa um það hversu gott er að búa út á landi, af hverju, jú ég var að setja mynd inn á facebook síðuna mína, af einum af okkar bíl-göngu ferðum út fyrir Akureyri. Dagsferðum eins og við höfum kallað það. Ég fór að hugsa um það að ég gæti ekki hugsað mér að vera án þess að geta keyrt smá spotta eða í svona klukkutíma og farið út úr bílnum og gengið um náttúruna og tekið myndir í leiðinni.
Svo.....
Ég verð að segja að ég gæti eiginlega ekki hugsað mér að flytja frá Akureyri og aftur til Reykjavíkur, nema þá tilneydd. Sumir myndu segja að ég gæti gert þetta frá Reykjavík líka, en það er ekki það sama. Ég hef gert það svo oft og ég verð að segja að landslagið þar er ekkert spennandi. Það er ekki svona margbrotið eins og hér allstaðar í kring. Ég myndi sakna þess mikið að geta ekki farið í svona ferðir, ef ég myndi láta mér detta í hug að flytja til Reykjavíkur einn góðan veðurdag.
Ég ákvað að vera dugleg og búa til nýtt útivistar albúm fyrir árið 2009 og er ég búin að setja inn nokkrar myndir sem Sigga sys og ég höfum verið að taka í gönguferðum okkar. Ég á auðvitað eftir að setja inn fleiri myndir. Það er svo tímafrekt að setja myndir inn á síðuna svo ég mun halda áfram í kvöld eða á morgun að setja inn myndir í albúmið
Það eru örugglega margir sammmála mér í þessu, er ég viss um. Það telst sennilega til lúxus að geta búið út á landi, því launin eru almennt hér á Akureyri frekar lá, lærri en í Reykjavík, þó kostar allt það sama hér og í Reykjavík og oft jafnvel dýrara. Launin ættu að vera í samræmi við það.
Ég hefði ekkert á móti því að fá launin hans Jónasar Fr. Jónssonar forstjóra Fjármálaeftirlitsins. Hann fær hvorki meira né minna en kr. 20.4 millur á 12 mánaða uppsagnarfresti. Þessi laun myndu duga fyrir 8 verkamenn í eitt ár! Geri aðrir betur!
Skyldi hann taka við þessu skammlaust, vitandi að það er fullt af fólki sem hefur mikla þörf fyrir þessa peninga, sem á jafnvel ekki fyrir mat ofan í börnin sín? Vegna þess að menn eins og hann og fleiri eru að taka við allt of miklum peningum sem ættu í rauninni að nýtast til þeirra sem minna mega sín. Kannski nær hann að réttlæta það svo hann geti sofið á nóttunni. Hann ásamt fleirum sem hafa fengið álíka ef ekki betri starfslokasaming við starfslok. Hvað skyldi Davíð fá fyrir sitt klúður?
Á ekki að taka til í kerfinu? Er ekki kominn tími á að hætta bjóða upp á svona starfslokasamninga. Ekki fæ ég starfslokasamning ef ég ákveð að segja upp starfi mínu hjá bænum. Eiga ekki allir að sitja við sama borð, eða skiptir starf mitt svo litlu máli að það væri hægt að leggja það niður? Ég tel svo ekki vera, samt hefur mér aldrei verið boðið upp á starfslokasamning.
En svona í alvöru tala, hvernig stendur á því að við erum að borga þessum ráðamönnum/forstjórum/bankamönnumo.fl., svimandi háar upphæðir þegar þeir hætta störfum þegar þjóðin er á hausnum?!
Svo erum við hinir látin sætta okkur við að launin okkar eru lækkuð!
Við sem erum með miklu lærri laun en þetta fólk. Eigum við allt í einu að vera með breiðara bak en þeir sem hafa miklu meira úr að moða en við hin. Hvernig í veröldinni er hægt að fá það út að við séum sterkari, lálaunafólkið?
Eða þá það að við eigum að þola betur að svelta og láta börnin okkar svelta og jafnvel missa öryggið, sem er heimili okkar? Það er alveg greinilegt að þetta fólk veit ekki hvað það er að vera fátækur eða hafa úr litlu að moða. Það er voðalega auðvelt að segja þjóðinni að spara á meðan ráðamenn þjóðarinnar koma aldrei til með að hafa tærnar þar sem við höfum hælanna, því þeir eru með svo há laun. þeir vita ekki hvað peningaleysi er, né hvað það er að geta ekki sofnað á kvöldin vegna kvíðboga fyrir næsta degi. Mun ég eiga mat fyrir allan mánuðinn eða ekki? Mun ég halda húsinu mínu eða ekki?
Ég held að ég sé búin að fá ágæta útrás fyrir svefninn þó langt sé í land að ég sé sátt!
Góða nótt.
Fannst skotinn í fjörunni við Vaðlaheiði!
Ég fór frekar seint að sofa í nótt, sem gerði það að verkum að ég dröslaði mér ekki fram úr rúminu fyrr en klukkan tíu í morgun. Það var ungur gestur sem fékk að gista hjá mér í rúminu í nótt og fékk ég því minna pláss til að teygja úr mér í allar áttir, hehe. Ég elska að geta breytt úr mér í rúminu og hafa nóg pláss.En hvað um það. Ég byrjaði á því að fá mér kaffi og fór síðan í sturtu. Við fórum síðan öll niður í bæ að leita að borðskreytingum fyrir ferminguna hennar Örnu dóttur Siggu sys. Síðan var farið í Bónus að versla í matinn og fleira. Ég, Rakel og Benjamín misstum okkur við að skoða úrval DVD mynda í búðinni, en við erum svo ferlega skynsöm að við enduðum á að ganga frá borðinu án þess að taka með okkur eins og eina DVD mynd. Þá var Sigga sys horfin! Við fundum hana við afgreiðslukassana.
Sigga ákvað að búa til pizzu í kvöldmatinn. Ég hinsvegar var að fara í vinnuna klukkan þrjú svo ég var ekki heima um kvöldmatarleitið til að borða með þeim pizzuna. Þegar Sigga og krakkarnir sóttu mig í vinnuna í kvöld sögðu þau mér frá því að þau hefðu farið í göngutúr inn á Vaðlaheiði og að þau hefðu fundið sel sem einhver hefði verið svo skelfilega vondur að skjóta án þess að drepa hann alveg, svo hann hefur kvalist til dauða litla greyið. Þau voru æst og mikið niður fyrir yfir vonsku þess sem það hafði gert. Þegar við komum heim beið mín í ofninum þessi líka dýrindis fylltur hálfmáni, mikið agalega var hann góður og borðaði ég hann með bestu list! Sigga sys hafði búið hann til handa mér. Þvílíkur munur að koma heim og alltaf búið að gera allt sem gera þarf, ekkert sem bíður mín að gera þegar ég kem heim af kvöldvöktunum.
Nú erum við komin með viftu í eldhúsið. Guðni var svo almennilegur að tengja hana fyrir okkur. Það er ekki hægt að segja að það hafi gengið vel í byrjun. Guðni fór niður í kjallara til að taka rafmagnið af eldhúsinu svo hann myndi ekki fá stuð í sig á meðan hann var að tengja viftuna í loftið. Rafmagnið fór af í eldhúsinu, það var ekki málið, en samt sem áður fékk hann gott stuð í sig á meðan hann var að tengja viftuna. Það kom í ljós að tengillinn fyrir loftljósið er ekki inn á sama tengli í rafmagnstöflunni sem ætlaður er fyrir eldhúsið. Þetta er nú meira klúðrið. Þetta tókst nú fyrir rest. Þegar hann var búin að þessu ákvað hann að laga sírennslið á klósettkassanum líka. Þar sem við vorum orðin átta manns í húsinu yfir áramótin tók Guðni sig til og bauðst til að laga hvítu eldhússtólana sem við þáðum með þökkum. Maðurinn bara gat ekki verið kyrr og slakað á með okkur hinum, hann þurfti alltaf að vera gera eitthvað og fær hann bestu þakkir fyrir alla hjálpina.
Sigga sys keypti DVD mynd um daginn og erum við að horfa á hana núna, aftur. Þessi mynd er frábær. Þetta er myndin "Monster-in-law " með Jennifer Lopez og Jane Fonda ásamt Michael Vartan og Wöndu Sykes. Þræl góð mynd. Ég keypti myndina "Notebook" þegar við vorum fyrir sunnan og horfðum við öll á hana heima hjá Guðna og var okkur boðið upp á kvöldsnarl og manni yfir myndinni. Krakkarnir eru voða ánægðir með að pabbi þeirra sé orðin tölvuvæddur og komin meira segja með msn, því nú geta þau spjallað við hann á msninu þegar hann er ekki í skólanum eða að vinna.
Nú er ég orðin nokkuð sifjuð enda er klukkan orðin nærri hálf fjögur og löngu tímabært að fara að sofa og hlakka mig til að fara í rúmið, nú hef ég rúmið mitt ein og engin lítill gestur sem fær lánað hluta af plássinu í rúminu mínu og ætla ég að halda áfram að lesa bókina sem ég er að lesa núna, upp í rúmi og sofna út frá henni.

Góða nótt.
Síðbúin áramótakveðja
Ívar bro, þú færð sendar kærar kveðjur frá okkur hér heima. Ég vona að jól og áramótin hjá þér í Þýskalandi hafi verið ánægjuleg og góð. Gleðilegt nýtt ár bro

Årsskifte hilsen til Mats, Tove, Lilia familie og familiemedlem

Við viljum endilega halda í vonina um að nýja árið verði betra en spár segja til um. Því viljum við óska ykkur öllum gleðilegt nýtt ár með óskir um betri og bættari tíma á nýju ári. Stöndum saman í baráttunni og styðjum hvort annað í því að halda áfram og passa missa ekki móðinn og gefast upp!
Við fórum í gær í göngu með hundana eftir vinnu hjá mér. Það var góður göngutúr, að vísu kyngdi niður snjó og byrjað að hvessa. Við létum það ekki á okkur fá og fórum í klukkutíma göngutúr með hundana hinumegin við brúna rétt hjá flugvellinum. Við tókum nokkrar myndir á leiðinni en einhverra hluta vegna misheppnuðust sumar þeirra, urðu of dökkar. Kannski set ég eitthvað af myndunum inn á bloggið. Við fórum á mínum bíl, því eins og ég sagði við Siggu sys, minn bíl kemst meira í snjó.
Guðni var svo almennilegur að gera við hurðina á bílnum mínum áður en hann fór til Reykjavíkur aftur. Við fengum allar að finna fyrir hálkunni undir snjónum í göngunni og runnum á hausinn. Það var ekki hægt annað en að hlæja þegar ein okkar byrjaði að detta og svo koll af kolli. Við vorum vel hress og endurnærð eftir þennan göngutúr. Hundarnir hæðstánægðir með að fá að hlaupa að vild og nutu sín í botn í snjónum. Shopie er svo lítil að hún eiginlega hvarf í snjónum, en hún lét það ekkert stoppa sig og hljóp um eins og engin snjór væri.Hér er allt á kafi í snjó og sumstaðar svell undir snjónum og eins gott að fara varlega svo maður renni ekki á hausinn eða lendi í árekstri á bílnum og slasi sig. Við erum að fá jólasnjóinn núna. Það er fallegt að sjá hvítann snjóinn yfir öllu. Trjágreinarnar sjást varla lengur fyrir snjó og sumstaðar svigna greinarnar undan þunga hans og litlu jólaljósin rétt sjást í gegnum þykkann snjóinn, mjög falleg sjón.
Við settumst niður í kvöld fyrir framan tv. og horfum á ríkissjónvarpið, þar var verið að sýna danska mynd sem virtist ekki vera mjög áhugaverð, svo við fengum okkur te og röbbuðum saman í staðin. Við erum nýbúin að svissa yfir á Skjá einn og Dexter að byrja, en hvað er málið, þeir eru að endursýna í 4 eða 5 sinnið sama þáttinn! Skyldi þetta vera ný sparnaðaraðgerð? En hvað um það, ég ákvað að blogga aðeins svona til tilbreytingar áður en við breiðum úr okkur í sófunum og setjum DVD mynd í tækið.

Góður dagur sem endaði skelfilega þegar líða tók á seinni hluta hans...
Rólegur Nýarsdagur hjá fjölskyldunni
Allir hjálpast að við að halda heimilinu hreinu og huggulegu. Í gær vorum við með Hamborgarahrygg ásamt meðlæti og allir lögðu sitt af mörkum við matseldina og fráganginn eftir matinn. Við fengum okkur sörur, konfekt og makkitons ásamt heimalagaðri brúnni lagtertu og súkkulaðikakó með rjóma þegar líða tók á kvöldið. Rétt fyrir klukkan tólf fórum við út að skjóta upp rakettum og fengu hundarnir að njóta dýrðarinnar með okkur, þeir virtust lítið kippa sér upp við öll lætin en fylgdust rólegir með og af áhuga þegar skotið var upp. Þegar við fórum inn aftur fengum við okkur gos, snakk, ís og meðlæti. Við kvöddum gamla árið í rólegheitum hér heima og horfðum saman á góða DVD mynd og fórum ekki að sofa fyrr en um fjögurleitið..eða kannski klukkan hafi verið eitthvað aðeins meira en það.
Við fórum suður til Reykjavíkur seint þann 23 des og áttum við notaleg jól með ættingjum okkar. Við borðuðum að sjálfsögðu Kalkún á aðfangadag sem Rut sys sá um að matreiða af mikilli list. Jóhanna sys og hennar fjölsk ásamt mömmu komu seinna um kvöldið í kaffi og áttum við öll notalega stund saman langt fram eftir nóttu. Yngsta prinsessan, Minerva, dóttir Jóhönnu frænku sem er rétt nýorðin 3ja mánaða, var róleg þó svo að húsið fylltist af fólki, hún er algjört yndi, litla krúttið. Öll fjölskyldan hittist á jóladag og borðuðum við saman hangikjet. Þetta var mjög svo notaleg og skemmtileg jól og áramót. Viljum við þakka öllum okkar ættingjum fyrir sunnan fyrir okkur.
Við heimsóttum Palla og Pippu og litlu ömmu prinsessurnar mínar inn í Grindavík í nýja húsið þeirra um hádegið á aðfangadag og svo aftur á annan í jólum og var vel tekið á móti okkur. Heimilið þeirra er mjög notalegt og góður andi í húsinu hjá þeim. Við töluðum saman lengi lengi vel og drukkum kaffi og fengum smákökur með kaffinu, Pippa er greinilega mjög góður bakari, það sýndi sig vel þarna. Litlu prinsessurnar geisluðu af gleði og voru mjög spenntar fyrir jólunum. Þær eru svo líkar að það er erfitt að þekkja þær stundum í sundur. Mamma þeirra varð að klippa hárið á Diljá stutt svo hægt væri með góðu móti að þekkja þær í sundur. Það var erfitt að kveðja þau en ég vona að það verði ekki mjög langt þangað til við getum heimsótt þau aftur...
Jæja ætli það sé ekki best að fara koma sér í rúmið og í svefn, ég þarf að mæta á vakt snemma í fyrramálið. Ég bíð ykkur öllum góða nótt og gleðilegt nýtt ár. Megi nýja árið veita ykkur/okkur öllum hamingju og gleði.
Jæja þá er búið að setja inn mjög fallegar myndir frá vestfjörðum sem eru eftir vin minn Þórð K. Sig
Jólin nálgast..
Ég er búin að versla nánast allar jólagjafir fyrir jólin, sem betur fer. Ég var forsjál og byrjaði í september að versla jólagjafirnar. Meira segja er ég búin að senda meirihlutann af jólagjöfunum suður til Reykjavíkur til fjölskyldu og vina. Ég og krakkarnir kláruðum að baka smákökurnar í gær á meðan Sigga sys sá um eldamennskuna. Maturinn var mjög góður hjá henni að sjálfsögðu, sys eldaði nautahjörtu sem er að sjálfsögðu hreinn vöðvi. Mjög mjúkt og gott kjöt, herramanns matur.
Ég og krakkarnir bökuðum tvær tegundir af súkkbita smákökum því á þessu heimili borða allir súkkbita smákökur. Búið var að baka Sörur og svo má ekki gleyma Vanilluhringjunum sem ég "bakaði" hjá Góð kaup.
eða þannig sko
Ég keypti tvo kassa af Vanilluhringjum frá Góð kaup, namminamm...mjög góðir.Við erum búin að baka brúna lagtertu, sem mér finnst vera nauðsynleg á jólunum. Ég ætla senda múttu lagtertu fyrir jólin. Næst á dagskránni er að baka piparkökur, ég kemst víst ekki hjá því.Ég hugsa að ég fari í þær framkvæmdir um helgina þar sem ég er ekki á vakt næstu helgi. Ég stóðst það ekki og mun taka aukavakt á föstudaginn kemur, en ég hefði átt að vera í fríi föstudag, laugardag og sunnudag. Ekki veitir af í þessari kreppu að taka að sér aukavaktir þegar þær koma inn. Það er mjög góður vinnuandi í vinnunni og því bara gaman að bæta á sig aukavöktum. Það þykir lúxus í dag að geta borgað skuldir sínar, afborganir af húsinu sínu og fleira.
Sigga eldaði sl. sunnudag villigæs ofan í liðið og mikið svakalega var hún góð. Ég sá um að gera sósuna og heppnaðist hún mjög vel. Ég notaði soðið af gæsinni og blandaði skógarberjasúpu í soðið ásamt kryddi og smá slettu af heimatilbúinni rifs- og hindberjasultu. sósan mjög góð.
Ég mun hafa meir og minna fiskrétti í matinn í desember, það gerir það að verkum að öllum hlakkar mikið til að borða jólasteikurnar. Ég var að sjálfsögðu mjög forsjál og er búin að kaupa allan jólamatinn
ég á að vísu eftir að kaupa hluta af meðlætinu með matnum.Jæja ætli ég láti þetta ekki gott heita í bili og reyni að sofna aftur. Best að koma sér í rúmið og reyna lúlla í hausinn á sér. Góða nótt öll, nær sem fjær.
Bestu kveðjur, frá mér auðvitað,
Diljá







